{"product_id":"marc-inbane-ensemble-set","title":"Marc Inbane Ensemble Set","description":"\u003cp\u003eLúxus sett sem inniheldur Perle de Soleil brúnkudropa og La Hydratan rakakrem frá MARC INBANE. Falleg snyrtitaska fylgir frítt með.  \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003ePerle de Soleil:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003ePerle de Soleil brúnkudroparnir frá MARC INBANE eru fullkomnir til að ná fram fallegum og heilbrigðum ljóma og náttúrulegri brúnku sem er sérsniðin að óskum hvers og eins.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eBrúnkudroparnir eru mjög auðveldir í notkun - þú einfaldlega blandar þeim saman við þitt eftirlætis rakakrem\/líkamskrem eða í sólarvörnina þína og nærð þannig fram náttúrulegri brúnku. Brúnkudropana skal aðeins nota með nærandi kremi og mikilvægt er að fylgja notkunarleiðbeiningum. Brúnkudroparnir innihalda ekki SPF og veita því ekki vörn gegn skaðlegum geislum sólar. Mikilvægt er að þvo hendur eftir notkun. \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eLa Hydratan:\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eMARC INBANE La Hydratan er lúxus rakakrem sem hentar til daglegrar notkunar á hreina húð. Það viðheldur eðlilegum raka húðarinnar og verndar húðina fyrir áreiti umhverfisins. La Hydratan dagkremið inniheldur Bronzyl® sem tryggir að húðin heldur lengur lit hvort sem er frá sól eða okkar náttúrulegu sjálfbrúnkuvörum. Innihaldsefnin Sheabutter, Hygroplex® og náttúrleg rakagefandi blanda (NMF, Natural Mousturizing factors) sjá til þess að húðin haldi fullkomnum raka og næringu sem gefur húðinni mýkt. \u003cbr\u003eLa Hydratan inniheldur háþróaða UV vörn sem veitir húðinni vernd gegn skaðlegum geislum sólar og ótímabærri öldrun.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e \u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003eNáttúrulegu plöntuþykkni er bætt við vegna mýkjandi og róandi eiginleika þess og gefur það einnig jafna og fallega áferð. Rakakremið er án olíu og er ríkt af vítamínum, gefur húðinni meiri fyllingu og aukinn ljóma. Með notkun kremsins endurheimtir húðin sitt náttúrulega jafnvægi og heilbrigði. Hentar öllum húðgerðum, jafnvel þeim allra viðkvæmustu.\u003c\/p\u003e\n\u003cp\u003e\u003cstrong\u003eKostir La Hydratan\u003c\/strong\u003e\u003c\/p\u003e\n\u003cul\u003e\n\u003cli\u003eDagkrem sem lengir endingartíma brúnkunnar\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSPF10 hjálpar til við að verja húðina gegn skaðlegum geislum sólarinnar og áreiti umhverfisins\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVeitir vörn gegn ótímabærri öldrun\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eSannreynt og prófað af húðlæknum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eVegan\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁn parabena\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eHentar öllum húðgerðum\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eÁn olíu\u003c\/li\u003e\n\u003cli\u003eLofttæmdar umbúðir\u003c\/li\u003e\n\u003c\/ul\u003e","brand":"Hár23","offers":[{"title":"Default Title","offer_id":47414638018747,"sku":null,"price":14900.0,"currency_code":"ISK","in_stock":true}],"thumbnail_url":"\/\/cdn.shopify.com\/s\/files\/1\/0647\/5264\/8379\/files\/IMG-2918.jpg?v=1769806009","url":"https:\/\/www.har23.is\/products\/marc-inbane-ensemble-set","provider":"Hár23","version":"1.0","type":"link"}